LÓA LITLA Á BRÚ

Lóa litla á brú hún var laglegt fljóð.
Svo ung og glöð og æskurjóð.
Hún vildi fá sér vænann mann.
Og vera alltaf svo blíð og góð við hann.

Og eitt sumarkvöld ók þar sveinn í hlað.
Á litlum bíl og Lóu bað.
Að aka með sér upp í sveit.
Þá varð hún feimin, rjóð og undirleit.

En síðan saga þeirra varð
sögum margra lík.
Þau áttu börn og buru
og þau búa í Reykjavík.
Hann vinnur eins og hestur
og hún hefur sjaldan frí.
Því Lóa þarf að fá sér fötin ný.

Sóló

En síðan saga þeirra varð
sögum margra lík.
Þau áttu börn og buru
og þau búa í Reykjavík.
Hann vinnur eins og hestur
og hún hefur sjaldan frí.
Því Lóa þarf að fá sér fötin ný.

Lóa litla á Brú, hún er lagleg enn.
Svo ung og glöð og heillar menn.
Hún ergir oft sin eiginmann.
Því hún er alltaf
svo blíð og góð við aðra en hann.



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.