MALAKOFF

G                      D
Þó deyi aðrir dánumenn,
G             D
Loff! Malakoff!

Hann Þórður gamli þraukar enn.
G
Loff! Malakoff! Mala!

Lifir enn hann Malakoff
A
þótt læknar vilji flensa' í
D
Malakoff, koff, koff.
G             C
Þá lifir Malakoff.
G    D       G
Þá lifir Malakoff.


Hann drekkur alltaf eins og svín, ...
og aldrei nema brennivín. ...

Það segja menn einn sumardag ...
að Þórður fullur fengi slag. ...

Hans lát barst út um allan bæ. ...
Og læknar sögðu: Hæ, hæ, hæ! ...

Þeir vildu fá að flá hans lík, ...
því enginn þeim er unun slík. ...

Þeir fóru' að brýna busana ...
og biðu upp á spítala. ...

En einn af þeim fór út í bæ, ...
að fá menn til að flytja hræ. ...

Hann gekk í búð. Að gömlum sið ...
þar hímdu dónar diskinn við. ...

Þar laut einn fram á búðarborð ...
og mælti'af vörum ekki orð. ...


Að honum læknir gengur greitt ...
og leggur hönd á bakið breitt. ...

"Hann Þórður er dauður! Það fór vel. ...
Við kryfjum hann, þann húðarsel. ...

Ég góða borgun bítala, ...
ef berðu líkið á spítala." ...

En dóninn leit á læknirinn ...
og það var þá einmitt hann Þórður minn. ...

"Ég sjálfur á mitt eigið lík. ...
Og síst er ég þín senditík." ...

Til höggs hann reiddi' og hélt um stút. ...
En læknir sneyptur labbaði' út. ...

Af þessu læknir læra má ...
að kryfja aldrei kvikan ná. ...

Og brýndu' ei fyrir busann þinn ...
en lík er komið í líkhús inn. ...

Texti: Björn M. Olsen



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.