NÆTUR

Nætur - draumalönd
Dimmblár himinn við stjónarrönd
Nætur - þar ert þú
Þangað svif ég í draumi nú

Allt sem ég óska mér er ofið í skýin hvít
Háleitar hugsanir, í húminu þín ég nýt
Ég hverf er kvölda tekur, hvert sem hugur ber
Svefninn laðar, lokkar mig af stað
Leiðin er greið

Nætur - draumalönd
Dimmblár himinn við stjónarrönd
Nætur - þar ert þú
Þangað svif ég í draumi nú

Allt það sem enginn sér, ég eygi um miðja nótt
Í svefni oft ég sendi skilaboð til þin, já
Þögnin flytur þvílík leyndarmál, þangað yfir

(Nætur -) Ó... draumalönd
Dimmblár himinn við stjónarrönd
Nætur - þar ert þú
Þangað svif ég (í draumi nú)

Og í nótt - ofurhljótt, er ég þar?
Enn á hugarflugi
Læðist inn - í þetta sinn, fanga ég þið

(Nætur -) Ó... draumalönd
Dimmblár himinn við stjónarrönd
Nætur - þí þar ert þú
Þangað svif ég
Skilaboð til þin

Nætur - þar ert þú
Þangað svif ég í draumi nú
(Og i nótt, ofurhljótt)
Í draumi nú
(Og i nótt, ofurhljótt)
Í draumi nú

Sendu gjarnan línu ef þú veist um höfund lags
Sendu gjarnan línu ef þú veist um höfund texta



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.