ÖNGSTRÆTI BORGARLÍFSINS

Hefur þú séð gamla manninn gramsandi í öskutunnum,
gera sér mat úr leifunum þar?
Hefur þú séð athvarf hans, hrollkalda kjallaraholu,
hímandi einstæðing, sem er gamalt skar?

Þú, sem ert dapur og þunglyndur
og þykist enga glætu sjá.
Gakktu með mér eina stund um öngstræti borgarlífsins
og þú sérð líf þitt í nýju ljósi þá.

Hefur þú tölt niður´ á torgið að kvöldi dags og
tekið eftir því, sem gerist þar?:
Friðlausir kornungir aldraðir eiturfíklar,
útlifuð reköld og fölu stúlkurnar.

Þú, sem ert dapur...

Fannstu nokkuð konuna með fötuna´ og þvottakústinn?
Fer hún að heiman gangandi um kvöld
að skúra loppin glæsilegar skrifstofur forstjóranna.
Skilur eftir heima soltna barnafjöld.

Þú, sem ert dapur...

Sástu nokkuð barnið, sem er barið daglega,
bælt og kúgað, kvalið á laun,
misþyrmt af föður sínum, forsmáð af móður sinni?
Flesta daga líður sára raun.

Þú, sem ert dapur...

Flytjandi: Halli Reynis
Lag: Ralf Mctell
Texti: Ómar Ragnarsson



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.