ROCK'N ROLL

D C G

GÉg man ennþá er ég keypti fyrsta Cgítargarminn Dminn
þá Gfór ég með hann út í bílskúr og ég Cæfði mig um Dsinn.
Allir Gheima þurft’að hlusta hundrað Esinnum á mín Amlög.
Mömmu sagði ég að seinna meir ég Cyrði Dfrægur Gmjög.

Ég keypti allar Bítlaplöturnar og hermdi eftir Paul,
já ég fyllti allt af plötum, það fór allt í handaskol.
Og ég sat við plötuspilarann og stældi sérhvern tón,
alla poppara ég dáði og reyndi að líkjast þeim í sjón.

     Ó, Grock ‘n roll ég gefið hef þér Cöll mín bestu ár,
     allt það Gbesta er þú bauðst upp á ég Ckunni upp á Ghár.
     Heilu dagana ég sat og samdi ástarljóð til þín,
     þó þú breyttist dag frá degi og villtir mönnum sýn.
     Þú mátt ei Dlá mér að ég reyndi að Gná þér.

Árið sextíu og níu þegar Trúbrot var og hét
þá ég elti þá á röndum, án mín fóru þeir ei fet.
Og ég samdi marga texta um rotið gerviþjóðfélag.
Viss um að ég myndi slá í gegn einn góðan veðurdag.

     Ó, rock ‘n roll ég gefið hef þér öll mín bestu ár,
     allt það besta er þú bauðst upp á ég kunni upp á hár.
     Og ég spilaði með hljómsveitum sem vegsömuðu þig
     þótt þú breyttist dag frá degi og lékir bara á mig.
     Þú mátt ei lá mér að ég reyndi að ná þér.

Loks ég taldi mig það góðan að ég fór að starfa einn,
fékk mér umboðsmann sem skildi mig og virtist hreinn og beinn.
Og hann átti sand af seðlum, var með sambönd út um allt
og við ræddum mína framtíð, það var bæði klárt og snjallt.

Og svo fórum við til London, gistum tvöhundruð hótel.
Jafnan plötufyrirtæki tóku okkur ekki vel.
Mér var sagt ég hefði ekki hæfileika, með það heim ég flaug.
En nú veit ég að frægðarbrautin er víst ekkert spaug.

     Ó, rock ‘n roll ég gefið hef þér öll mín bestu ár,
     allt það besta er þú bauðst upp á ég kunni upp á hár.
     Og nú á ég engan gítar því mér reynslan hefur kennt
     að ég er sem milljón unglingar, á það var mér bent.
     Þú mátt ei lá mér að ég reyndi að ná þér.

Sendu gjarnan línu ef þú veist um höfund lags
Sendu gjarnan línu ef þú veist um höfund texta


Sendið mér gjarnan póst ef þið finnið villur í textunum
en takið gjarnan fram við hvaða texta er átt.