RÖKKURRÓ

Vornætur friður fyllir bæinn
í rökkurró.
Sólin í vestri sest í æginn
í rökkurró.
Og meðan rauðagulli reifast næturtjöld.
Þú kemur til mín í rökkurró.

Manstu ekki vina fyrsta fundinn
við Arnarhól.
Mörg var þar okkar unaðsstundin
þá sezt var sól.
Við heyrðum svani kveða söng um ást og vor.
Og sátum þar ein í rökkurró.

Langt er nú liðið síðan þá
því leiðir skildu og þú hvarfst mér frá.
Veistu? Ég vakti marga nótt.
Og vonaði og bað af heitri þrá.

Ohó - vina í kvöld ég veit þú bíður
við Arnarhól.
Tak mig í faðm því tíminn líður
og sezt er sól.
Því enn á vorið nógar vonir fyrir þau.
Sem sitja hér ein í rökkurró.



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.