SAGA ÚR SVEITINNI

DKveð ég um A7konu og Dmann D7
og Gkonan hún B7eldaði og Emspann
en A7karl hann var Dfróður
um GfornaldarEmgróður
Dkveð ég um A7hana og Dhann.

Og bóndadóttir hún dró
einn dáindis þyrskling úr sjó
hún setti hann í pottinn
sótti svo þvottinn
og loks sagði hún: Nú er það nóg.

DÞau lifðu í Gsátt og Dsamlyndi og trú
á sauðkindinGa og heiDlaga jómAfrú. A6 A7

Og kötturinn Meyvant fann mús
í meisnum og bauð henn dús
þau ræddu um fólsku
Frakka á pólsku
og dreyptu á norðlenskum djús.

Og kindin hún kveinaði hátt
svo klerkur hann brotnaði í smátt
en þeir límdu hann saman
og þótti það gaman
honum fannst gamanið grátt.

Þau lifðu í sátt og samlyndi og trú
á sauðkindina og heilaga jómfrú.

Í haga var Búkolla á beit
og brennandi vorsólin skeit
og hundurinn eltist
við hænuna og geltist
í haga var Búkolla og hún beit.

Og nautið hét Hálfdán og hló
að húsfreyju þegar hún dó
því þótti ekki klerkur
þesslega merkur
en nautið það hét Hálfdán sem hló.

Þau lifðu í sátt og samlyndi og trú
á sauðkindina og heilaga jómfrú.

Nei nautið hét Hálfdán og hlóð
á húsfreyju lof sem hún stóð
uppi útí hlöðu
nær hulin í töðu
úr vikunum vætlaði blóð.

Og bóndasonur sá
einn sjórekinn mannsfót og brá
á flótta hann lagði
en fóturinn sagði
sonur minn segðu ekki frá

Þau lifðu í sátt og samlyndi og trú
á sauðkindina og heilaga jómfrú.

Kvað ég um konu og mann.

Lag:         Megas
Texti:       Megas



Sendið mér gjarnan póst ef þið finnið villur í textunum
en takið gjarnan fram við hvaða texta er átt.