SÁUÐ ÞIÐ HANA SYSTUR MÍNA

Sáuð þið hana systur mína
sitja lömb og spinna ull?
Fyrrum átti ég falleg gull;
nú er ég búinn að brjóta og týna.

Einatt hefur hún sagt mér sögu;
svo er hún ekki heldur nísk;
hún hefur gefið mér hörpudisk
fyrir að yrkja um sig bögu.

Hún er glöð á góðum degi
glóbjart liðast hár um kinn -
og hleypur þegar hreppstjórinn
finnur hana á förnum vegi.

Texti: Jónas Hallgrímsson




Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.