SÍÐASTA SJÓFERÐIN

C                G             C
Fyrir nokkru fór ég eina sjóferð,
am            F                 C
því ég vildi reyna ærlegt puð.
G                                         C
Gvend á Eyrinni og Róda raunamædda
am                 G                          C
hitti ég þar en kokkurinn hét Stína stuð.

am
Það var alltaf bræla af og til.
em
Við þráðum Sól og sumaryl.
     G                                             D
Ég reyndi að hringja heim en Mamma grét.
am
Við höfðum ekkert rafmagnið,
em
Með sextán týrum lýstum við,
     G      G7     C                  C7
en aldrei vissi ég hvað skipið hét.

F                  G                   C
Ég aldrei hef vitað aðra eins sjóferð
     am              F             C
því ekkert okkar hafði vit á sjó
G          C             G                   am
Nei - ég vildi miklu heldur vinna í skógerð,
          F                   G                 C
því af sjómennskunni fengið hef ég nóg.

Og einn morgun þá lentum við í strandi.
Þá var Ryksugan á fullu uppí brú.
Kringum bátinn saug hún upp Þrjú tonn af sandi
uns kallinn hrópaði upp: "Til vinstri snú!"

Og þá var haldið heim í slipp,
svo hratt að báturinn tók kipp.
Grænn í framan gekk ég út og spjó.
Litlir kassar runnu um allt
og svo verður furðu kalt,
þegar veðrið versnar úti á sjó.

Ég aldrei hef vitað aðra eins sjóferð
því ekkert okkar hafði vit á sjó
Nei - ég vildi miklu heldur vinna í skógerð,
því af sjómennskunni fengið hef ég nóg.

Nú andar suðrið sæla vindum þýðum.
Áhöfnin er uppi að úða hval.
En skipstjórinn eltir dallinn á sjóskíðum.
Ó, ég vildi að ég kæmist Heim í Búðardal.

Svo er sagt að Stína stuð
sé nú loksins trúlofuð
Jóa útherja, þar hvarf sú von.
Hann er á Kútter Haraldi.
Mig vantar fyrir fargjaldi
til að komast heim og fara að vinna í Kron.

Ég aldrei hef vitað aðra eins sjóferð
því ekkert okkar hafði vit á sjó
Nei - ég vildi miklu heldur vinna í skógerð,
því af sjómennskunni fengið hef ég nóg.


Flytjandi: Brimkló
Lag: Steve Goodman
Texti: Þorsteinn Eggertsson




Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.