SÍÐASTI DANSINN

Það kvöldar við bergið og blær fer um strönd.
það brimar í hjarta og hlý er mín hönd.
Hljóðlát fer nóttin um hlíðar og grund
og helgar okkar fund.

Ég finn að við elskum hvort annað svo heitt.
Eitthvað í hjartanu er orðið breitt.
Við vöggum í dansi við draumanna nið
og dalsins fuglaklið.

Við syngjum saman þennan söng.
því hann er minn og þinn.
Við göngum götuna mót gæfu.
Sem er þín og mín.
Og dansinn dunar enn.
Síðasti dansinn senn.
Við eigum stjörnu á næturhimni.
Ástin mín ein.

Það titrar í brjóstum af brennandi þrá,
og brosið þitt segir mér allt sem má.
Á djúpbláum himninum dillar sér ský
uns dagar enn á ný.

Við syngjum saman þennan söng.
því hann er minn og þinn.
Við göngum götuna mót gæfu.
sem er þín og mín.
Og dansinn dunar enn.
Síðasti dansinn senn.
Viðeigum stjörnu á næturhimni.
Ástin mín ein.

Flytjandi: Björgvin Halldórsson og Erna Gunnarsdóttir
Lag: Kristinn Svavarsson
Texti: Árni Johnsen



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.