SIMBI SJÓMAÐUR

Simbi sjómaður
Simbi sjómaður
Simbi sjómaður

Við þekkjum öll hann Simba litla sjómann,
er siglir djarft um höfin blá.
Hann er í leit að lífsins ævintýrum
með líf sitt fullt af heitri þrá.

Til hennar sem Simbi sá í draumi
og söngvar allir liggja til.
Til hennar sem Simbi sá í draumi
og Simbi elskar hérumbil.

Ef Simbi sér hana ei aftur
er sorgin honum einatt vís.
Þá verður glasið greyinu honum Simba kært
sem góðum sálum paradís.

Simbi sjómaður
Simbi sjómaður
Simbi sjómaður

Flytjandi: Haukur Morthens
Lag: Haukur Morthens
Texti: Vilhjálmur frá Skálholti



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.