SÍMINN

Símann, sumir telja,
talsvert flókinn hér,
ef viltu, númer velja,
ég vil kenna þér.

     Fyrst þú heyrnartólið tekur
     og berð það upp að eyra...
     Ef að enginn heyrist sónn,
     bilaður er telefónn.

Síminn sparar tíma
mikilvægt því er
að kunna rétt á símann
og reglurnar temja sér.

     Fyrst þú heyrnartólið tekur
     og berð það upp að eyra...
     Ef að enginn heyrist sónn,
     bilaður er telefónn.

Styður síðan fingr' á skífu
og stafinn fyrsta velur,
Síðan snöggt til hægri snú,
og hana nú.

Flytjandi: Halli og Laddi
Texti: Halli og Laddi


Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.