TRYGGÐARPANTARNIR

Komdu og skoðaðu í kistuna mína.
Í kössum og handröðum þar á ég nóg,
sem mér hafa gefið á minningu sína
meyjarnar allar sem brugðust mér þó.
Í handröðum þessum ég hitt og þetta á,
sem heldur en ekki er fróðlegt að sjá.

Rósaklút þennan hún Guðrún mín gaf mér.
Það gekk allt í spaugi í rökkrinu þá.
Seinna dró gleðina og gamanið af mér,
ég grét eins og krakki er hana ég sá.
Vefja að sér beykirinn, þörf var mér þá
að þurrka af mér skæluna klútgreyinu á.

Þarna hef ég undur af öðru eins maður,
Önnum og Gunnum og Kristínum frá.
Það er til vonar, ég væri ekki glaður,
en ég verð aldrei hnugginn og það muntu sjá,
og enn hafa stúlkurnar mætur á mér.
Mun ég þó fyrst um sinn trúa þeim ver.



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.