ÞAÐ GERÐIST HÉR SUÐUR MEÐ SJÓ
Það gerðist hér suður með sjó
að Siggi á Vatnsleysu dó.
:,:Og ekkjan hans Þóra
var ekki að slóra
til útfararveislu sig bjó:,:
Það var logndrífa og ládauður sjór
er hinn látni í gröfina fór.
:,:Og ekkjan með sjarmi
brá svuntu að hvarmi
men sáu að hryggðin var stór:,:
Klerkur sagði, "Holdið er hey
vér hryggjumst og kveinum ó vei
:,:Þann gæðamann tel ég
er guði nú fel ég
við gleimum hans trúmensku ei":,:
Þegar gengin frá garði var drótt
kom granninn og talaði hljótt.
:,:Þó góðan með sanni
þú sirgir nú manninn
má sorginni gleyma í nótt":,:
En Þóra sagði: "Því skal ei leynt
að þetta er fallega meint,
:,:en sorgina ég missti,
er ég kistusmiðinn kysti
þú kemur því góði of seint":,: