ÞAÐ BLANDA ALLIR LANDA UPP TIL STRANDA

Það blanda allir landa upp til stranda
og vanda sig svo við að brugga bjór.
Síðan drekkur fólkið þennan fjanda
og viðskipta hópurinn er stór.

Þeir selja hver öðrum slíkan varning
og úrvalið af tegundum er gott.
Þó þeir stundi líka ýmsan barning,
þá lifa þeir víst ótrúlega flott.

Já Það blanda allir landa upp til stranda.
og standa í þessu nótt sem nítan dag.
En unglingarnir valda mörgum vanda,
þeir kunna ekki foreldranna fag.

Úr turnunum súrhey börnin reykja
og steikja sér svo smáfugla á tein.
Næstum því í hlöðunum þeir kveikja,
svo gamla fólkið rekur bara upp vein.

Já Það blanda allir landa upp til stranda.
og standa í þessu nótt sem nítan dag.
:.:En unglingarnir valda mörgum vanda,
þeir kunna ekki foreldranna fag:.:

Flytjandi: The lonly blueboys
Texti: Þorsteinn Eggertsson



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.