ÞAÐ ER GOTT AÐ ELSKA
Það var einn morgun snemma sumars þegar sólin kíkti
inn
ég sat við gluggann með kaffið var að horfa á
himininn
geislarnir tipluðu inn á hvítum fótum og földu
brosin sín
og fundu þig undir sænginni mjúku og opnuðu augun þín.
Viðlag:
og Það er gott að elska
og það er gott að elska
og það er gott að elska
konu eins og þig.
Þú býður mér blíðlega góðan
dag og drekkur þitt kínverska te
dimmblá fegurð augna þinna er það eina sem ég
sé
Það er ljúft að horfa á þig og finna friðinn
sem leggur frá þér
þú ert falleg svona nývöknuð, þú ert
allt sem ég óska mér.
Og það er gott ...
Og nú er ég orðinn faðir og finn hvursu ljúft
það er
að fá furðu smáar hendur að morgni dags um háls
á mér.
Og gagnvart konu eins og þér er ástin mitt eina svar
og ef það er líf eftir þetta líf þá
mun ég elska þig líka þar.
Og það er gott ...
Lag: Bubbi
Texti: Bubbi
Flytjandi: Bubbi