ÞAÐ LIGGUR SVO MAKALAUST

Það liggur svo makalaust ljómandi á mér
mér líkar svo vel hvernig heimurinn er,
mér sýnist allt lífið svo ljómandi bjart
og langar að segja svo dæmalaust margt.
Hæ, dúllía dúllía o.s.frv.

Það skilst varla hjá mér eitt einasta orð
mér allt sýnist hringsnúast, stólar og borð,
minn hattur er týndur og horfið mitt úr.
Ég held ég sé komin á sjóðandi túr.
Hæ, dúllía dúllía. o.s.frv.

Samt líð ég hér áfram í indælisró,
í ,,algleymis" dillandi ,,löngunafró"
já, þetta er nú ,,algleymi" ef algleymi er til,
því ekkert ég man eða veit eða skil.
Hæ, dúllía dúllía, o.s.frv.


Texti: Bjarni Þorsteinsson



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.