ÞÍTUR Í LAUFI
Þítur í laufi bálið brennur,
blærinn hvíslar sofðu rótt.
Hljóður í hafið röðull rennur,
roðnar og bíður góða nótt.
Vaka þá ennþá vinir saman,
varðeldi hjá í fögrum dal.
Lífið er söngur glaumur gaman,
gleðin hún býr í fjallasal.
Vertu til er vorið kallar á þig,
vertu til að leggja hönd á plóg.
Komdu út því að sólskinið vill sjá
þig,
sveifla hak og rækta nýjan skóg.