ÞJÓÐHÁTÍÐ Í EYJUM

Meðan húmið siglir sund
sælufunda leitum.
Göngum saman létt í lund,
lífsins gleði neitum.
Þessi dalur, þetta bál,
þessar fögru nætur.
Veigar dans og vinarmál
verma hjartarætur.

Ástin vekur unga snót,
allt er fegurð vafið.
Bjarma slær á gras og grjót,
Gleymmér ei og hafið.
Amorskröftum nóttin nær
nötra fjallastráin.
Engin veit hvern endi fær
ævintýraþráin.

Vinur hvert sem ferðu frá
fjalladýrð og meyjum.
Meðan lifir þú munt þrá
þjóðhátíð í Eyjum.

Hærra öll nú hefjum róm
hér við loga bjarta.
Látum bergsins enduróm
ylja hverju hjarta.
Verum kát og frjáls og frí
felum dapurt sinni.
Eyjalögin enn á ný
efla náin kynni.

Flytjandi: Geirmundur Valtýsson og Eyjólfur Kristjánsson
Lag: Geirmundur Valtýsson
Texti: Guðjón Weihe



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.