ÞJÓÐVEGURINN

Nú finn ég fiðringinn.
Ég fylli bílinn minn.
Þar er að verki gamli ferðahugurinn.
Svo er ekið af stað.
Og ekki áð um sinn.
Ég ætla að glíma í allan dag,
við þjóðveginn.

Ég tek minn poka og tjald.
Tek mitt veiðidót.
Við tekur hamslaus keyrsla
yfir urð og grjót.
Og á áfangastað,
hvíld og gleði ég finn.
Allan daginn hef ég glímt
við þjóðveginn.

Glímt við þjóðveginn.
Þessa gríttu braut.
Glímt við þjóðveginn
gegnum dalanna skaut.

Tjaldi upp að slá.
Fjöllin eru blá.
Nú liggur ekki lengur lífið á.
Má ég skríða hér inn
on' í svefnpokann þinn.
Því ég hef allan daginn glímt
við þjóðveginn. Ú, ú.

-----SÓLÓ-----

Glímt við þjóðveginn.
Þessa gríttu braut.
Glímt við þjóðveginn
gegnum dalanna skaut.

Tjaldi upp að slá.
Fjöllin eru blá.
Nú liggur ekki lengur lífið á.
Má ég skríða hér inn
on' í svefnpokann þinn.
Því ég hef allan daginn glímt
við þjóðveginn. Ú, ú.

Því ég hef allan daginn glímt.
Því ég hef allan daginn glímt.
Því ég hef allan daginn glímt.
Við þjóðveginn.



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.