ÞÚ ERT YNDIÐ MITT

Þú ert yndið mitt yngsta og besta,
þú ert ástarhnossið mitt nýtt,
þú ert sólrún á suðurhæðum,
þú ert sumarblómið mitt frítt.

Þú ert ljósið sem lifnaðir síðast,
þú ert löngunnar minnar Hlín.
Þú ert allt sem ég áður þráði,
þú ert ósk, - þú ert óskin mín.



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.