ÞÚ VEIST HVAÐ ÉG MEINA
Hljótt í vestri kveður kvöld
kvikna eldar nætur.
Táp og kæti taka völd,
titra hjartarætur.
Dalsins lífi greiðum gjöld
gleðin sanna lokkar.
Þráin vaknar þúsundföld
þessi nótt er okkar
Þú veist hvað ég meina mær,
munarblossar ginna.
Komdu þar sem freisting fær
fylling vona sinna.
Meðan nóttin framhjá fer
fljóðið ástarblíða.
Inni í tjaldi trúðu mér
tækifærin bíða.
Vinnum ástarheitið hér
hjörtun látum mætast.
Enginn veit og enginn sér
okkar drauma rætast.
Lag: Sigurjón Ingólfsson
Texti: Guðjón Weihe