VERTU EKKI AÐ PLATA MIG

Ég sá hana í horninu á Mánabar,
hún mynti mig á Brendu Lee.
Ég skellti krónu í dukeboxið
og hækkaði vel í því.
Hún þagði bara og lakkaði á sér neglurnar
og þóttist ekkert taka eftir mér.
Í hægðum mínum labbaði að borðinu
og sagði hátt.

Komdu með, ég bið þig.
Komdu með, ég vil þig.
Ég vona að þú segir ekki nei við mig,
því trúðu mér ég dái þig.
Það eina sem skiptir máli
ert þú og ég.

Vertu ekki að plata mig.
Þú ert bara að nota mig.
Ég er ekki eins og allar stelpurnar,
sem hoppa upp í bíla með hverjum sem er.

Ó trúðu mér ég er ekki að plata þig.
Kæra vina viltu treysta mér.
Aðeins stjörnurnar á himnum vita
hvað í mínu hjarta býr.
Ég mundi gera allt í veröldinni fyrir þig,
ef þú aðeins vildir fylgja mér.
Á drekanum við rennum niðr' í bæ
í fjórða gír.

Komdu með, ég bið þig.
Komdu með, ég vil þig.
Ég vona að þú segir ekki nei við mig,
því trúðu mér ég dái þig.
Það eina sem skiptir máli
ert þú og ég.

Vertu ekki að plata mig.
Þú ert bara að nota mig.
Ég er ekki eins og allar stelpurnar,
sem hoppa upp í bíla með hverjum sem er.

Komdu með, ég bið þig.
Komdu með, ég vil þig.
Ég vona að þú segir ekki nei við mig,
því trúðu mér ég dái þig.
Það eina sem skiptir máli
ert þú og ég.

Komdu með, ég bið þig.
Komdu með, ég vil þig.
Ég vona að þú segir ekki nei við mig,
því trúðu mér ég dái þig.
Það eina sem skiptir máli
ert þú og ég.



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.