VERTU SÆL MARÍA

Já, vertu sæl María, sæl og bless
ég sé þig aldrei framar vina mín.
Ég kveð María, svo klár og hress,
já ég kveð svona mest upp á grín.

Það var eina ágústnótt, allir fuglar sungu rótt,
við í skógi fundumst fyrsta sinn.
Hinum hefur eflaust þótt,
að við kynntumst nokkuð fljótt,
svo ekki sé nú minnst á afganginn.

Já, vertu sæl María...

Allt það sem ég sagði þar, sjálfsagt veit það rétta var,
en slysin varast vilja flestir menn.
Hafi einhver skaði skeð, skalt þú góða vera séð,
og húkka einhvern annan gæja senn.

Já, vertu sæl María...

Flytjandi: Río Tríó
Texti: Jónas Friðrik



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.