VETRARNÓTT

Í örmum vetrarnætur
litli bærinn sefur rótt.
Unga barnið grætur,
en móðir þess það huggar skjótt.

Í baksýn fjöllin há,
snæviþaktir tindar rísa.
Fögur sjón að sjá
og norðurljósin allt upp lýsa.

:,: Fögrum skrúða landið skrýðist
slíkum vetrarnnóttum á.
Flækingsgrey eitt úti hírist,
vosbúðin hann kvelur þá.

Ef birta fer að degi,
litli bærinn vaknar skjótt.
Hvíldar nýtur eigi
lengur þessa vetrarnótt :,:


Flytjandi: Ágúst Atlason
Lag: Ágúst Atlason



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.