VILTU DANSA

Vertu ekki smeyk,
ég býð þér upp í sjeik.
Hvernig geturðu neitað mér
er í dansinn ég býð þér.

Hvernig geturðu setið kyrr?
Hvernig geturðu setið kyrr?

Úti' á gólfi' er allt liðið,
allir dansa nema við.
Komdu líka með í sjeik,
komdu' og vertu ekki smeyk.

Hvernig geturðu setið kyrr?
Hvernig geturðu setið kyrr?

Allir dansa' og djamma dátt,
dansa sjeik af öllum mátt.
Komdu líka stúlkan mín,
þú þarft ekki' að skammast þín

Hvernig geturðu setið kyrr?
Hvernig geturðu setið kyrr?



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.