DRAUMUR FANGANS
Það var um nótt, þú drapst á dyr hjá
mér,
að dyrnar opnuðust af sjálfu sér
og inn þú komst og kveiktir ljós mér hjá.
Ég kraup að fótum þér í hljóðri
þrá.
Þú lagðir hönd að brjósti mér svo blítt
að birta tók og mér varð aftur hlýtt.
Ó, þráða stund, hve létt varð leiðin
heim
um loftbraut hugans, vorsins bjarta geim.
Er óskir rætast, bætist böl og stríð
í bláma fjarlægðar sést liðin tíð,
en við oss blasir björt og fögur strönd
og bak við hana sólrík draumalönd.
Þá leiðumst við í lífsins helgidóm
í ljúfum sporum vaxa munablóm.
Og fótmál vor, hvert skref á skammri stund,
þó skiljumst hér er heit um endurfund.
Texti: Freymóður Jóhannesson