EF AÐ MAMMA VISSI ÞAÐ

Ég hef unga, laglega' og litla snót
og langar að fara á stefnumót
með henni, hvert einasta kvöld.

Og nú er ég kominn í gleði og glaum
og gef mér dálítið lausan taum
með henni, sem ég elska í kvöld.

Og ef að mamma vissi að
ég væri hér á þessum stað
þá yrði pabbi máski mát
og mamma brysti strax í grát.

Mér er sama hvað aðrir segja um mig
nú syng ég og dansa og kyssi þig
en aðeins þetta einasta kvöld.



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.