EITT TIL FIMMTÁN GLÖS
Eitt glas tvö glös þrjú glös Búmm
góði finndu leiðina sjálfur upp í rúm
fjögur glös fimm glös sex glös Súmm
finnur svimann koma kallinn Dúm, Dúm, Dúm.
Þúsund litlar sleggjur slá kljúfa þinn haus
leitaðu að flöskunni tappinn er jú laus.
Sjö glös átta glös níu glös takk
gömlu traustu vinirnir eru skíta pakk.
Þú ert snillingur í kjaftinum kannski er það
list
kennir öllum öðrum um bömmerinn fyrst
tíu glös ellefu glös tólf glös mát
þú getur alltaf falið þig bakvið blakkát.
Lærðu flöskurnar að fela af stöðum er jú
nóg
þú finnur inni á klósetti langþráða
ró
þrettán glös fjórtán glös fimmtán
glös tár
með góðum vilja áttu eftir tvö til þrjú
ár.
Flytjandi: Bubbi
Lag: Bubbi
Texti: Bubbi