JÁRNKARLINN
Ég Cþekkti eitt sinn drengstaula
sem Gfölur var og fár,
með reytt og úfið hár,
svo Cskyndibitablár.
Ég sá of þennan strákaula
hann Ggugginn var og grár.
Hann vældi þó að aldrei kæmu Ctár.
Hann vildi aldrei borða neitt
sem Gkraftinn gefið gat,
hann bara sat og sat
og Cgaf í fæðu frat,
en mamma hans og pabbi
pældu Gallar leiðir út,
en dýrið setti' upp vandlætingarCstút. C7
Þá Fvítamín amma' honum Ckraftinn allan gaf.
Hún Gdældi honum ofan í hann Cþegar hann svaf.
FStafrófinu af vítamínum Cfékk hún í hann blekkt
með Gsmurolíukönnu og stórri Ctekt.
Hann er eins og klettur það heyrist Gdoj-joj-joj-joj-joj.
Þegar hann dettur þá heyrist Cdoj-joj-joj-joj-joj.
Hann heitir Árni og segir Gdoj-joj-joj-joj-joj.
Hann er úr járni, því heyrist Cdoj-joj-joj-joj-joj.
Og amma hans með blindu auga
bissnesljósið sá
gull á fingri og tá
sú gamla fór að spá.
Að markaðssetja gemlinginn
til gróða yrði gott
og íslands besta
landkynningarplot
Nú æðir hann um heimsbyggðina
í hasarfullum leik
umbinn amma er hvergi smeyk
hann lemur alla í steik
Sem andlit okkar út á við
hann talar skýrt og hátt
hann gæti leikið He-man voða grátt.
Já vítamín amma' honum hormónana gaf.
Hún dældi þeim ofan í hann þegar hann svaf.
Stafrófinu af bætiefnum fékk hún í hann blekkt
með smurolíukönnu og stórri tekt.
Hann er eins og uxi það heyrist doj-joj-joj-joj-joj.
Þegar hann er hugsi þá heyrist doj-joj-joj-joj-joj.
Hann heitir Árni og segir doj-joj-joj-joj-joj.
Hann er úr járni, því heyrist doj-joj-joj-joj-joj.
En vítamín amma' honum bætiefnin gaf.
Hún dældi þeim ofan í hann þegar hann svaf.
Bílhlössum af próteinfæðu fékk hún í hann blekkt
með fægiskóflu og risastórri tekt.
Hann er eins og klettur það heyrist doj-joj-joj-joj-joj.
Þegar hann dettur þá heyrist doj-joj-joj-joj-joj.
Hann heitir Árni og segir doj-joj-joj-joj-joj.
Hann er úr járni, því heyrist doj-joj-joj-joj-joj.
Höfundur texta: Bjartmar Guðlaugsson
Höfundur lags: Bjartmar Guðlaugsson