KVÆÐIÐ UM FUGLANA

A7Snert Dmhörpu mína, himinborna A7dís,
svo Dmhlusti englar Bbmguðs í ParaFdís.
Við Edimgötu mína A7fann ég fjalarDmstúf
og festi E7á hann A7streng og rauðan Dmskúf.

Úr furutré, sem fann ég út við sjó
ég fugla skar og líka' úr smiðjumó.
Í huganum til himins oft ég svíf
og hlýt að geta sungið í þá líf.

Þeir geta sumir synt á læk og tjörn,
og sumir verða alltaf lítil börn.
En sólin gyllir sund og bláan fjörð
og sameinar með töfrum loft og jörð.

Ég heyri' í fjarska villtan vængjaþyt.
Um varpann leikur draumsins perluglit.
Snert hörpu mína himinborna dís,
og hlustið, englar guðs í Paradís.

Lag:         Atli Heimir Sveinsson
Texti:       Davíð Stefánsson


Sendið mér gjarnan póst ef þið finnið villur í textunum
en takið gjarnan fram við hvaða texta er átt.