VIÐ EIGUM SAMLEIÐ

Um bláan sæinn söngvar óma
því sumarið er komið ástin mín
Og aftur stendur allt í blóma
Af ungri gleði jörðin skín.

Og því skal fagna af heitu hjarta
Og heilla þennan fagra ljúfa dag
Og líti himinn heiðið bjarta
Skal hefjast okkar gleðilag

Og glaðar raddir syngja í sálum okkar beggja,
Mót sumri stefnir framtíðin öll
Og hátt er enn til lofts og vítt til veggja
Í vorsins drauma bláu sólskins höll

Og þangað hjartans löngun líður
Sem lengst og fegurst dagsins endurskín
Sjá vorið eftir okkur bíður
Við eigum samleið vina mín

Lag: Sigfús Halldórsson
Texti: Tómas Guðmundsson



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.